~Enginn er verri þótt hann sé perri~
17.08.2007 21:06:29 / Fernie

Önnum kafin húsmóðir

Vegna tímaskorts þá hefur mér gefist lítill sem enginn tími til að sinna þessu bloggi mínu enda eru heldur betur breyttar aðstæður í lífi mínu :) búin að eignast yndislega litla stelpu sem lætur svo sannarlega hafa fyrir sér. Því lýsi ég hér með yfir að þetta blogg er komið í tímabundið frí í óákveðinn tíma.

Knús og kyss

Ykkar,

Erna Ferna


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 10:48:52 / Fernie

Íris sys gæsuð........

Gæsunin heppnaðist með eindæmum vel og sys grunaði ekki neitt.

Mótorhjólakappi frá mótorhjólafélaginu Trúboðunum sótti Írisi og rétti henni tilheyrandi galla til að klæða sig í svo rúntaði hann með hana í c.a 40 mín og skilaði henni til okkar uppá Reykjavíkurflugvöll þar sem við mamma , Inga og Hildur biðum eftir henni með gæsabúninginn , eplasnafs og bjór. Við klæddum hana upp sturtuðum bjór og eplasnafsi í hana og svo skellti hún sér í rúmlega hálftíma útsýnisflug í 2 manna rellu.

Henni varð pínu óglatt síðustu 10 mín í fluginu en var fljót að jafna sig eftir nokkra sopa af eplasnafsi , eftir flugið skutluðum við henni í kvennahlaupið og hljóp hún 2 km ásamt Ingu og Bryndísi og svo hittum við þær skvísur uppí keiluhöll og tókum einn keiluleik, þangað mættu einnig Camilla og Sigrún.

Eftir keiluleikinn fóru Íris , Inga og Bryndís uppí Mecca Spa í dekur. Íris sys skellti sér í 60 mín kínverskt nudd á meðan Inga og Bryndís fóru í c.a 30 mín nudd. Svo kíktu þær til okkar eftir dekrið til mömmu uppí Grafarvog og tóku sér til þar fyrir kvöldið.

Fórum á japanska veitingastaðinn Maru sem sérhæfir sér í Sushi en sem betur fer gátum við sem megum ekki eða fílum ekki sushi fengið okkur annað að borða þar.                               

Maturinn var afbragsgóður og þá sérstaklega eftirrétturinn mmmm volg súkkulaði kaka með ís - gerist ekki betra :)

Ég fór heim uppúr kl tíu um kvöldið algjörlega búin á því og sofnaði fljótlega eftir að ég kom heim - hinar skvísurnar héldu áfram til miðnættis.

Er búin að skella inn nokkrum myndum frá gæsuninni.

kv.Erna sem er ennþá of þung .....


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 10:29:54 / Fernie

Leti.is

Vá hvað ég er ekki að standa mig hérna..........

jæja erum búin að parketleggja herbergjaálmuna og öll herbergin - við máluðum þau öll líka áður og þetta kemur alveg svakalega vel út.

Búið að lýsa upp ganginn alveg heilan hellings , svo er búið að setja gólflista að hluta , aðallega til að við gætum flutt úr stofunni og inní herbergi.

Svo pöntuðum við okkur 9 stk eikarhurðir og þær eru væntanlegar í hús á föstudaginn næstkomandi... það verður nú engin smá munur að fá  nýjar hurðir.

Svo var síðasti vinnudagurinn minn í gær (í bili) og mín komin í bumbuhvíld , nú get ég loksins sofið út og dúllast heima ahhhh næs.

Er einmitt búin að þvo öll ungbarnafötin , strauja og raða í kommóðu svo það er allt nánast reddý nema bara þetta klassíska - að þrífa allt hátt og lágt hehe.

Matthías er sem betur fer mjög spenntur fyrir litla systkininu sínu og þetta verður raunverulegra og raunverulegra fyrir honum þegar hann sér barnavagninn , bílstólinn og vögguna komna í hús.

Var að uppgötva nýtt ilmvatn , alveg ferlega gott sem heitir True Star Gold frá Tommy Hillfiger - held að það sé Beyonce Knowles mynd utan á því.. fékk sko prufu frá mömmu og ég var ekki lengi að klára hana og Íris systir keypti hana fyrir mig í fríhöfninni um daginn :)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 15:27:16 / Fernie

Hitt og þetta

 

1.Fellihýsið selt

2.ungbarnabílstóll + vagga komin í hús

3.hreiðurgerð - mála og parketleggja herbergja álmu

4. rétt rúmar 4 vikur eftir af meðgöngunni

nýjar myndir á bumbusíðu: http://public.fotki.com/erniemegafernie/bumbumyndir/

5. vinn út maí og er svo farin í afslöppun

6.Cobra fór í skapgerðarmat - gekk vel

7.Skoda Octavian er æði og eyðir engu - komin með dökkar filmur í rúður

8.Pant fá sólríkt og hlýtt sumar

 ~over & out~

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 13:14:24 / Fernie

Barcelona er æðisleg borg

Fórum til Barcelona ásamt matvörudeild Íslensk Ameríska.

Lögðum af stað fimmtudaginn 26 apríl útá völl uppúr kl 13:30 frá Íslensk Ameríska og ég náði að kaupa mér slatta af snyrtivörum ofl í fríhöfninni.

Áttum svo flug kl 16:30 og og vorum lent á staðartíma kl 22:30 , þá var farið með rútu á vegum Heimsferða uppá Hótel sem er nota bene svakalega flott , hef aldrei gist á svona flottu hóteli , herbergin rúmgóð og allt það. Losuðum okkur við farangurinn og fórum niður á píanó bar hótelsins að spjalla aðeins frameftir. Svo pöntuðum við okkur Sæþór brenndar samlokur með salt snakki uppí hótelherbergi og tróðum þær í okkur fyrir svefninn , gjörsamlega að deyja úr hungri og þreytu.

Á föstudeginum vöknuðum við nokkuð snemma og fengum okkur góðan morgunmat á hótelinu , fórum síðan með hópnum niður að Römblunni og löbbuðum s.s frá Catalonyu torgi og niður að höfninni og fengum okkur að borða þar. Eftir matinn sóluðum við okkur aðeins og tókum síðan leigubíl í moll lengra frá sem  heitir Glorias , þar gátum við verslað aðeins á Matthías Mána. Ég fann ekkert á mig en Tinna og Kristín voru svo sætar þegar þær sáu sætan bol sem þeim fannst vera ekta á mig og keyptu hann handa mér, ég veit ekki hvað ég er búin að þakka þeim oft. Eftir mollið var farið uppá hótel og við tókum okkur smá leggings (lögðum okkur) svo eftir það var smá sundkeppni uppá þaki hótelsins , bara uppá grínið.

Um kvöldið hittumst við svo öll í lobbyinu og fórum saman út að borða. Fyrir valinu var Brasilískur veitingastaður sem átti víst að vera alveg ágætur. Ég fór að sjálfsögðu í sæta bolinn frá stelpunum , hann svoleiðis smell passaði á mig og nota bene ekki óléttubolur! Appelsínugulur gellubolur takk fyrir :)  En já maturinn á þeim veitingastað var ekki uppá marga fiska , maður var bara orðinn svo glorhungraður að maður lét sig hafa það og gúffuðum matnum í okkur. Maturinn var borinn fram hjá flestum á trébretti , engar sósur og ekki neitt með - jú nema Sæþór fékk hvítlaukssósu sem var hellt í smá holu á trébrettinu með "girnilegu" kanínunni sinni *bjakk*   Eftir matinn fór hópurinn aftur uppá hótel og beint á píanóbarinn og þar var djúsað og spjallað frameftir nóttu.

Á laugardeginum var það sama , fenginn sér morgunmatur snemma og svo var farið af stað í skoðunarferð. Skoðuðum Neu Camp leikvanginn , sem tók heljarinnar tíma.. ferlega boring og mikið labb.. svo var aðeins sólað sig og fengið sér að borða á svæðinu. Eftir það fórum við að skoða Gaudi kirkjuna , engin smá smíði og ennþá í smíðum (sjá myndir). Það voru fullt af túristabúðum í kringum kirkjuna og þar keyptum við okkur búninga fyrir leikinn á sunnudeginum. Svo fórum við uppá hótel og það var tekin smá leggings og svo um kvöldið var ákveðið að fara á fínan veitingastað. Þjónarnir þar voru búin að benda okkur á að koma kl átta en staðurinn opnar ekki fyrr en hálftíma seinna en er víst svaka vinsæll veitingastaður. Þar sem það er erfitt að mæta stundvíslega svona stór hópur saman þá komum við ekki fyrr en hálf níu og þá var komin svakalega löng röð fyrir utan veitingastaðinn , þar sem við erum sannir íslendingar nenntum við engan veginn að bíða í röð og fundum annan töluvert lakari stað við hliðiná og pöntuðum okkur að borða. Maturinn var ekkert spes þar (eins og vanalega). Vorum s.s ferlega óheppin með mat í þessari ferð sem er ferlega skrýtin þar sem Barcelona er þekkt fyrir mikla matarmenningu en við vorum bara óheppin. Eftir matinn vildi hópurinn nú fara á almennilegt djamm svo það var gengið niður að höfn þar sem lífið var og stoppað í góðan tíma á einum pöbbnum. Sumir ákváðu að fara heim á meðan aðrir fóru á skemmtistaðina. Við Sæþór fórum s.s heim að lúlla enda bæði alveg búin á því eftir daginn.

Á sunnudeginum fórum við í smá göngu niður Römbluna e.h og komum við á Ítölskum veitingastað sem ein í hópnum var búin að mæla með , ég var farin að þrá að fá mér ekta ítalska pitsu sem ég fékk nema það var ekki í boði að fá ananas en pizzan var mjög góð , það er fyrir öllu! Svo hittum við hópinn aftur kl 15 og fórum samferða í átt að Neu Camp , nóg af labbi og svo fundum við nokkra pöbba og sátum fyrir utan þá til að komast í "stemninguna" en það var ekki mikið um svoleiðis (ekki eins og í Englandi) við biðum þar í um 3 tíma sem mér fannst algjört waist of time en leikurinn byrjaði ekki fyrr en 18:30 . Við fórum á völlinn kl 18 , ég fékk mér popp og kók á meðan aðrir fengu sér að sjálfsögðu bjór (að þau héldu) en þau komust að því síðar að bjórinn var óáfengur!! haha gott á þau. Svo byrjar leikurinn , maður var búinn að heyra að á svona leikjum væri alveg gríðarleg stemning en allir voru sammála um það að þetta var mjöööög rólegt , ég sá folk þarna með fjölskylduna sína bara í rólegheitu, enda var þetta ekki merkilegur leikur svosem. Sæþór varð fyrir miklum vonbriðgðum. Eftir leikinn tók við heljarinnar langt labb. Það voru yfir 100 þús manns á leiknum og allt stappað í lestirnar og við íslendingarnir ekki mikið fyrir að bíða í röðum löbbuðum áfram á þrjóskunni , ég var svoleiðis að míga á mig og allir pöbbar fullir , nennti ekki að hafa fyrir því að bíða þar að komast á klóið svo það var labbað og labbað í meira en klukkutíma , stalst inná hótel á leiðinni til að pissa , þvílíkur léttir svo komumst við loksins heim á hótel. Það var stoppað við á píanó barnum að svala þorstanum og svo var fólk að ákveða hvort það ætti að fara á djammið eða hvað , út að borða osfr en við Sæþór áttum bara enga orku eftir svo við ákvaðum bara að skipta um föt og borða á veitingastað hótelsins sem var by the way besti maturinn sem við höfðum fengið í ferðinni , já maður þurfti ekki að leita langt eftir alltsaman!! Svo eftir matinn ákváðum við bara að fara snemma í háttinn og byrja daginn snemma á mánudeginum enda seinasti dagurinn okkar.

Mín vaknaði kl 7:30 skellti mér í sturtu , vakti kallinn kl átta og við fórum niður að fá okkur morgunmat , svo var farið upp aftur pakkað niður og klætt sig eftir veðri. Vorum búin að vera frekar óheppin með veður , mest allan tímann var skýjað eða skýjað með köflum en síðasta daginn var alveg heiðskírt sem var algjört æði , sem betur fer áttum við ekki flug fyrr en seint þann daginn. Við fórum s.s ásamt nokkrum öðrum aftur í mollið að reyna finna krókódíl með takka sem Matthías pantaði áður en við fórum út , það gekk ekki neitt því miður , keyptum þó krókódíl og e-n spúandi dreka. Svo stálumst við til að kaupa smá ungbarnaföt í H&M á bambino og nærur á mig - thats it. Skelltum okkur síðan aftur uppá hótel , beint uppá þak og sóluðum okkur við sundlaugarbakkann , ég hafði það nú ekki í mér að skella mér í laugina en hinir gerðu það þó , ég náði að smá roða á axlir og kinnar svo maður kom nú ekki næpuhvítur heim.

En mikið er gott að vera komin heim - heima er best!!

Endilega tékkið á myndunum!

Over & Out

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 10:29:01 / Fernie

Þreyta punktur is

Nú er það byrjað .... svefnlausu næturnar , þokkalega pirrandi.

Það er sama á hvaða hlið ég er , það fer illa um mig .. sí byltandi sem er by the way ekkert auðvelt með þessi aukakg framaná mér , svo ég er ferlega pirruð á nóttunni. Stundum eða oft bætist brjóstsviði eða nábítur við þetta þá er mér öllu lokið. Sem betur fer eru "bara" 2 mánuðir eftir.

Matthías er svo mikil dúlla , skruppum í HFJ um síðustu helgi og vorum að keyra framhjá tjörninni þar þá segir hann "hey það er rosa langt síðan við gáfum öndunum brauð , verðum að gera það í sumar með litla barninu".

Svo sótti ég hann í leikskólann í gærdag og þá segir hann við mig ægilega stoltur "mamma ég fann duddu fyrir litla barnið úti" - þá hafði hann s.s fundið skemmda túttu af dúkkupela og hugsaði til litla barnsins og setti það í úlpuvasann til að gefa litla barninu.  Greinilega orðinn spenntur að fá litla systkinið sitt í sumar. Hann er líka farinn að sýna Aroni sem er er litli bróðir Viktors vinar hans áhuga , hafði s.s ekki sýnt honum neinn áhuga hingað til en um síðustu helgi þá settist hann hjá honum og strauk honum á höfðinu (líkt og Aron væri hundur) hehe.

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 14:46:55 / Fernie

Fólk er fífl

Til að gera langa sögu stutta............... eða ennþá lengri :P

Þá ætluðum við fyrir páska að skoða Mözdu  sem var skráður til sölu á bílasölu á Akranesi.

Við hringdum í bílasalan sem hafði svo samband við eigandan (eldri maður) hvort hann gæti sýnt bílinn seinnipartinn þann daginn en þá gat hann það ekki.

Anyhúw.........

þá var bara ákveðið að bíða með að skoða hann eftir páska, allt í góðu með það.

Svo hringjum við á þriðjudeginum eftir páska í bílasalann sem hefur svo aftur samband við eiganda bílsins og hann var til í að sýna okkur hann voða spenntur og það var ákveðið að hittast á bílasölunni á Akranesi kl.17:30 en þeir á bílasölunni loka kl 18 svo við þurftum að vera snar í snúningum , fengum að hætta aðeins fyrr í vinnunni og svoleiðis og brunuðum upp eftir og vorum mætt stundvíslega kl 17:30 en ekkert bólaði á karlinum.

Sölumaðurinn hringir í kauða um leið og við komum og þá sagðist hann vera á leiðinni (var s.s bara heima hjá sér í rólegheitum) svo líður tíminn... tuttugu mín liðnar og ekki sést til kallsins sem nota bene býr bara þarna rétt hjá , mesta lagi 2 mín á leiðinni.

Þá hringir bílasalinn í hann aftur og þá var sama sagan , hann ennþá heimahjá sér en s.s á leiðinni.... ég meina það við vorum orðin ansi pirruð að bíða!

Svo kl 18:05 c.a 35 mín of seint kemur kellingin hans draugþunglynd á bílnum (sem var by the way mjög flottur svona við fyrstu sýn).

Matthías var sofnaður í bílnum svo við gátum ekki prufukeyrt bílinn saman svo Sæþór fór og tók smá hring á honum á meðan ég beið útí bíl með Matthíasi.

Svo kom hann aftur , jújú fínt að keyra hann og svoleiðis en við nánar skoðun var bíllinn mjög sjúskaður , rifið bílstjórasætið og fl.

Sæþór fer þá inn til bílasalans að spjalla bæði við hann og kellinguna, og minnist á það að bíllinn sé frekar sjúskaður og e-ð og gefur dónalegt tilboð í hann sem henni leist nú ekkert á enda langaði okkur ekkert lengur að kaupa bílinn af þessu fólki sem dissar mann svona en já hún s.s sagði þeim það að kallinn hefði verið fullur heima (á þriðjudegi sjáið til)!! og var að þá að bíða eftir kellingunni til að koma og sýna okkur bílinn þess vegna dróst þetta svona.

En já þetta náði ekki lengra , við höfðum ekki lengur áhuga þessum bíl svo við

enduðum með að kaupa okkur Skoda Station í gær árg'2004 :D

og er ég alsæl með þau kaup!

Bíllinn á meira að segja sama afmælisdag og Matthías - halda sé nú:haha:

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 01:42:24 / Fernie

Hótel Rangá - algjört æði

Skelltum okkur yfir eina nótt á Hótel Rangá en vinkonur mínar voru svo yndislegar að gefa Sæþóri það í afmælisgjöf og auðvitað græddi ég á því :)

Lögðum af stað í brjáluðu veðri og vorum komin þangað um kl fimm.

Komum okkur vel fyrir í svaka fínu deluxe hótel herbergi og gerðum okkur reddý í rólegheitunum fyrir dinner á veitingastað hótelsins.

Fyrst fórum við að sjálfsögðu á barinn á undan og sátum þar og spjölluðum um lífið og tilveruna , ég sullaði í sprite-i og Sæþór fékk sér tvo kalda.

Svo fórum við niður í kósý veitingasalinn og pöntuðum okkur góðan mat.

Sæþór fékk sér rækjukokteil og laxakokteil í forrétt , elg í aðalrétt og berjadessert.

Ég fékk mér fiskisúpu , lamb og humarhala og berjadessert - mjög gott og við alveg pakk.

Svo eftir matinn fórum við inní hótelherbergi og horfðum aðeins á sjónvarpið alveg á meltunni og tókum síðan smá keppni í trivial persuit - Sæþór vann :)

 vöknuðum síðan kl 10 um morguninn og fengum okkur góðan morgunmat og svo dóluðum við okkur í bæinn í rólegheitunum.

Takk stelpur innilega fyrir okkur , þessi gjöf hitti beint í mark hjá okkur :)

Endilega kíkið á nokkrar myndir frá dvölinni á Hótel Rangá.

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 08:59:22 / Fernie

Skrautleg árshátíð

Já það er óhætt að segja það að árshátíð Símans hafi verið skrautleg.

Mættum í kokteilpartý rétt fyrir kl 18 síðan vorum við komin uppúr kl 19 í Laugardalshöllina þarsem árshátíðin var haldin. Þar hitti ég skvísurnar Guðrúnu , Ásdísi og Sunnefu sem biðu með fordrykkina á bökkum , eflaust ekki verið auðvelt að halda á þeim!!

Allavega til að gera langa sögu stutta þá var MIKIL ölvun , fólk byrjaði að drekka snemma og svo var nóg af áfengi í boði hússins. Það var Rómverskt þema og því voru sverð og svoleiðis á borðunum og þegar leið á kvöldið voru drukknir menn farnir að skylmast....

Ein ung kona sem hafði ekki farið á djammið síðan 2004 (eignaðist börn í 05 og 06 , þessi fæddur 06 eingöngu 4 mán og á brjósti) , hafði drukkið kannski aðeins of mikið og féll niður stigann frammi í andyri og fékk þungt höfuðhögg , hún lá á gólfinu hálf meðvitundarlaus og það blæddi frá höfðinu , frekar spooky .. pilsið hennar náði víst upp fyrir nærurnar og það sem mér fannst verst að engum datt í hug að laga það fyrir hana , neinei hún var bara látin liggja svona á meðan beðið var eftir sjúkrabílnum , öryggisverðir sáu til þess að enginn kæmist að henni.

Svo uppúr miðnætti ákváðum við að koma okkur heim , ég kom við á klóinu og þá kom ein ung kona æðandi inn hágrenjandi og maðurinn hennar á eftir henni og hún alblóðug... þá hafði greyið fengið eitt sverðið í ennið og fékk stóran skurð. Það hafði einhver kastað sverðinu eða eitthvað svoleiðis og hún varð fyrir barðinu á því greyið. Mér leist nú ekkert á þetta , vaskurinn alblóðugur.... parið tók sér leigubíl á slysó.

En svona í heildina litið þá var þetta ágætis árshátíð , dræm skemmtiatriði en mjööög góður matur og ég tala ekki um frábærir þjónar! hehe:D

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 13:55:25 / Fernie

Patrolinn seldur................

Hvernig bíl eigum við að fá okkur?

1. Mazda 6 station diesel

2. VW Passat station diesel

3. Kia Sorento diesel (jepplingur)

4. Ford Escape (jepplingur)

5. Nissan Navara (pallbíll)

6. Toyota Avensis station diesel

7. Nissan Terrano II (jeppi)

8. Mitsubishi L-200 (pallbíll)

9. Isuzu D-Max (pallbíll)

10. Subaru Legacy station

11. annað - hvað þá?

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 08:50:55 / Fernie

Bílavesen...........

Isss Birta , alltaf hefurðu rétt fyrir þér! Jújú patrolinn "góði" er líklega að gefa upp öndina , er að verða svo kraftlaus. Hann dó næstum því upp Kambana um helgina , hafði enga orku!! Furðulegasta mál! Okkur vantar að losna við hann , planið er að fara með hann í ástandsskoðun og sjá hvort það gæti verið e-ð smávægilegt sem orsakar þetta kraftleysi eða eitthvað meiriháttar dæmi - meira ruglið!!

Okkur langar að flytja inn ALMENNILEGAN bíl sem kemur til með að duga okkur í 7-10 ár. Ferlega gaman að skoða ebay á kvöldin :)

Á deyglunni hjá okkur er árshátíð Símans 10 mars næstkomandi - annars ekkert annað planað................... ó well hef ekkert merkilegt að segja.

Túrílú!! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 16:13:53 / Fernie

Margt búið að gerast.....

en ég hef bara ekki nennt að skrifa það hehe

Helgina eftir brillupið fórum við í stutta helgarferð til Glasgow , tókum fullt af myndum úr þeirri ferð og á eftir að skella þeim inn (tekur heljarinnar tíma). Það er algjört æði í Glasgow , stutt að fljúga sem er þvílíkur munur fyrir mig sem er frekar flughrædd. Við höfðum allan föstudaginn og laugardaginn og þessir dagar voru nýttir til að skoða búðirnar við göngugötuna. Árshátíðin var haldin á föstudagskvöldinu á hótelinu sem við gistum á. Ég verslaði voða lítið á mig , vildi láta strákana mína ganga fyrir svo ég komst í stuð í H&M og raðaði flottu fötunum á Sæþór og svo fórum við í verslun sem heitir Primark minnir mig , ógó ódýrt þar svo það var alveg hægt að tapa sér og ég keypti föt á Matthías í þeirri búð og tvö bikiní á mig í leiðinni. Hafði fyrr um daginn verslað á mig flottan bol í Jane Norman á útsölu , kostaði ekki nema tæp 8 pund :) Svo áttum við flug snemma á sunnudeginum og vorum lent heima kl 13:15 - voða næs.

En já í síðustu viku ákvað ég að taka mér fyrr pásu frá skólanum og þungu fargi af mér létt! Var eftir áramótin aðeins í náminu með hálfum hug og mér þótti það nú algert waist of time og sóun á peningum svo ég ákvað að taka mér hlé fram að næstu áramótum.

Einnig greiddum við staðfestingargjaldið inná Barcelonaferð - þangað munum við fara í lok apríl eða frá 26 - 30 apríl :) Ég verð þá gengin 32 vikur og ég vona bara svo innilega að ég verði ennþá jafnhraust þá og ég er núna! En þessi ferð er á vegum vinnunnar hans Sæþórs , þau fá allt frítt en makar þurfa að borga fyrir sig - þetta verður alveg geggjað :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 00:19:29 / Fernie

Lævís og lúmsk erum við :)

Við hjónin komum öllum í opna skjöldu á afmælisdaginn hans Sæþórs þegar við fengum prest óvænt heim til okkar til að pússa okkur saman.

Okkar allra nánustu héldu bara að þau væru að mæta til okkar í afmælisveislu Sæþórs og áttu sko ekki von á því að það myndi breytast í brúðkaupsveislu :D

Allir voru að vonum alveg steinhissa á þessu og miklar blendnar tilfinningar í gangi. Sumir táruðust á meðan aðrir voru brosandi spurningamerki - algjör æði og heppnaðist vel í alla staði í einu orði YNDISLEGT.

Það var ekki laust við að maður var soldið stressaður fyrir stóru stundina , ég var svo hrædd um að einhverjir myndu mæta of seint en pabbi og Ásta komu á slaginu fimm en presturinn mætti nefninlega á undan þeim en planið var að hann átti að koma inn á eftir öllum gestunum en þetta hafðist :)

Svo mættum við niðrí bæ á stað sem nefnist Qbar vorum búin að bjóða vinum og vandamönnum þangað í afmælispartý og þar var sama sagan , enginn hafði hugmynd um þetta og þegar það var liðið aðeins og kvöldið og allir pottþétt mættir tilkynnti Sæþór gleðitíðindin og mikil fagnaðarlæti brutust út í kjölfarið og við fengum þvílíka gæsahúð- þetta var ÆÐI !

Yndislegur dagur , frábært kvöld og allir skemmtu sér konunglega frammá nótt.

Er rétt búin að skella örfáum myndum inn - meira á leiðinni :)

Kærar þakkir fyrir okkur!!!

Knús og kyss

Erna og Sæþór


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 16:17:45 / Fernie

Skólinn hafinn að nýju

Þá er ballið byrjað - mín mætti í "staðbundna lotu" (sem þýðir ég þurfti að mæta í tíma í skólanum) 5 og 6 janúar og er ég nú skráð í 3 grunnáfanga.

1.MHL 203 - ljósmyndun

2.MHS 103 - Prent- og ljósmyndasaga

3.SJL 203 - Sjónlist

Námið byrjar með miklum hraði og þurftum við að skila 350 orða ritgerð í prent og ljósmyndasögu um eina bls úr handriti Jónsbókar frá árinu 1280 sem er gömul íslensk lögbók og áttum við að lýsa síðunni og einstaka þáttum hennar, myndefni og textaáferð.

Áhugavert finnst ykkur ekki? hehehe nema hvað að skrifa ritgerð er langt frá því mín sterkasta hlið og ég fór yfir lesefnið og ég var algjörlega tóm en kennarinn sagði að það væri nú eiginilega hægt að "bulla sig í gegnum þetta" sem ég og gerði og skilaði 380 orða ritgerð og fékk A fyrir , kennarinn alveg hæst ánægður með mig og ég alveg steinhissa - átti engan veginn von á þessu hehehe

Framundan er Glasgowferð með vinnunni hans Sæþórs helgina 2-4 feb :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 09:53:33 / Fernie

Áramótin voru notó

Vorum heima hjá okkur ásamt múttu & Sjonna og Írisi & Óla og borðuðum saman ljúffenga kengúru og með því - alveg geggjað.

Horfðum á Skaupið sem okkur fannst bara ekkert sérstakt (eins og alltaf) og svo rétt fyrir miðnætti fóru kallarnir út að sprengja nokkrar bombur og eina tertu og Matthías og auðvitað við hinar fylgdumst spennt með.

Eftir sprengingarnar kíktum við aðeins yfir í næsta botnlanga til Gests & co og fylgdumst með 200 þús kr tertusýningunni þar (var að kafna úr súrefnisskorti sökum mengunar - þvílíkur vibbi) allavega stoppuðum bara stutt þar og skunduðum okkur heim með prinsinn í háttinn - mamma og þau voru heima á meðan að spila Meistarann og voru alveg á fullu að spila þegar við komum og svo þegar prinsinn var sofnaður þá tókum við Trivial til morguns - bara gaman :)

Minns fór ekki að sofa fyrr en 6:30 eftir að hafa skutlað gestunum heim til sín :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Baby on board
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1690 dögum